Grein Archives | Jafnlaunastofa

Hvað er svona merkilegt við það?
24. október 2025

Starfsfólk Jafnlaunastofu skrifa:

„Af hverju eruð þið alltaf að tala um karlastörf og kvennastörf? Er ekki starf bara starf?“ spurði þátttakandi á námskeiði um starfagreiningar og virðismat starfa.

Spurningin kemur reglulega upp og er fullkomlega skiljanleg. Á yfirborðinu virðist kyn ekki eiga að skipta máli í samfélagi þar sem ábyrgð, skyldur og kröfur til fólks í starfi eru í dag sambærilegar, óháð kyni.

En þrátt fyrir miklar framfarir erum við ekki enn komin á þann stað að kyn skipti engu máli þegar kemur að launum. Kynbundinn launamunur, konum í óhag, er enn til staðar, hvort sem litið er til atvinnutekna, óleiðréttra eða leiðréttra launa. Rannsóknir sýna jafnframt að þegar konur verða meirihluti í ákveðinni starfstétt lækkar virði hennar og þar með launin.

Launamunur kynjanna tengist því ekki einstaklingunum sjálfum eða eðli starfa, heldur samfélagslegu virðismati á störfum eftir kyni.

Virðismat samfélagsins

Hagstofa Íslands hefur bent á að kynskiptur vinnumarkaður sé meginorsök kynbundins launamunar, að karlar og konur starfa að jafnaði í ólíkum störfum og atvinnugreinum, og þau störf sem konur sinna eru almennt metin lægra.

Á Íslandi höfum við þó löngum verið sammála um og lögfest meginregluna,  að greiða skuli jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf. En þá vaknar spurningin: Hvernig vitum við hvaða störf eru jafn verðmæt? Það kann að virðast flókið, en það er hægt.

Virðismat starfa felst í því að greina hvaða kröfur starf gerir til starfsfólks, til dæmis um þekkingu, ábyrgð, álag og vinnuumhverfi, og meta þær með hlutlægum og málefnalegum viðmiðum sem hafa verið þróuð með hliðsjón af jafnrétti og fjölbreytileika á vinnumarkaði.  Þannig má bera saman störf á sanngjarnan hátt og tryggja að laun endurspegli raunverulegt virði, ekki kynbundin viðhorf.

Slíkt matskerfi hefur verið notað hér á landi um áratuga skeið, meðal annars hjá sveitarfélögum, og Alþjóðavinnumálastofnunin hefur sett fram skýrar leiðbeiningar til að styðja við framkvæmdina.

Baráttan heldur áfram

Jafnlaunastofa vinnur daglega að því að styðja vinnuveitendur í þessari vinnu – með fræðslu, þróun virðismatskerfa og ráðgjöf um virðismat starfa í þágu launajafnréttis.

Í dag, þegar fimmtíu ár eru liðin frá Kvennafrídeginum þar sem konur á Íslandi lögðu niður störf til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags síns, er mikilvægt að draga fram hvernig hægt sé að vinna gegn kynbundnum launamun.

Á Jafnlaunastofu reynum við að draga fram áður ósýnilega þætti og meta. Því það sem mælist ekki, breytist ekki. Virðismat starfa gerir okkur kleift að sjá hið ósýnilega, að meta störf á sanngjarnan hátt og tryggja að laun séu byggð á verðmæti, ekki kyni.

Við á Jafnlaunastofu ætlum ekki að gefast upp fyrr en jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf eru ekki lengur baráttumál heldur sjálfsögð staðreynd.

The post Hvað er svona merkilegt við það? appeared first on Jafnlaunastofa.

49 ár
24. október 2024

Bryndís Guðmundsdóttir, Helga Björg O. Ragnarsdóttir, María Björk Lárusdóttir og Rósa Björk Bergþórsdóttir skrifa:

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna helgaði árið 1975 stöðu kvenna. Af því tilefni tóku kvenfélög og kvennasamtök hér á landi höndum saman og skipulögðu viðburði til að koma kröfum kvenna um jafnrétti á framfæri. Tillaga um að konur legðu niður störf á degi Sameinuðu þjóðanna þann 24. október var ein þeirra.

Í dag eru 49 ár frá kvennafrídeginum þegar 90% kvenna á Íslandi lögðu niður störf, launuð og ólaunuð, í þeim tilgangi að mótmæla margvíslegri mismunun gegn konum á vinnumarkaði og vekja athygli á framlagi kvenna til samfélagsins. Konur komu saman á útifundum víðsvegar um landið og blésu hver annarri baráttuanda í brjóst. Fjölmennasti fundurinn var á Lækjartorgi þar sem um 25 þúsund konur komu saman. Í fjölmiðlum víða um heim voru fluttar fréttir af samtakamætti og baráttuhug kvenna á Íslandi.

Kvennafrídagurinn 1975 var mikilvæg birtingarmynd þeirrar kvennasamstöðu sem einkennt hefur kvenfrelsisbaráttu í gegnum tíðina. Sú kvennasamstaða sem í honum fólst styrkti baráttu kvenna á öllum sviðum samfélagsins fyrir kvenfrelsi og jafnrétti sem leiddi til umbóta á sviði jafnréttismála á næstu árum og áratugum.

Kvenfrelsi fyrir 49 árum

Staða kvenna árið 1975 var allt önnur en sú staða sem konur búa við í dag. Kerfislægar hindranir voru margar. Þrátt fyrir að atvinnuþátttaka kvenna ykist stöðugt voru dagvistunarúrræði takmörkuð og oft kostnaðarsöm. Fæðingarorlof var þrír mánuðir og aðeins fyrir útivinnandi mæður. Hlutfall kvenna var 5% á Alþingi og 3,6% í sveitarstjórnum. Konur fóru síður í háskóla og voru fáar í stjórnunarstöðum í fyrirtækjum og stofnunum. Konur og börn sem bjuggu við heimilisofbeldi höfðu takmörkuð bjargráð þar sem Kvennaathvarfið kom ekki til sögunnar fyrr en 1982, Stígamót 1989 og önnur úrræði seinna. Samfélagsleg viðmið settu konum takmök þar sem hlutverk kvenna var tengt barneignum og umönnun. Þátttöku í hinu opinbera lífi fylgdi gjarnan gagnrýni á konur sem mæður og eiginkonur.

Þó að jafnrétti hafi ekki verið náð hér á landi frekar en annars staðar í heiminum hefur kvenfrelsisbaráttan skilað mikilvægum áföngum. Þar má nefna framsækna jafnréttislöggjöf, aukinn fæðingarorlofsrétt óháð kyni, aukna vitund um ofbeldi gegn konum og börnum ásamt úrræðum fyrir þolendur ofbeldis, jafnara hlutfall kynja á Alþingi og í sveitarstjórnum, fleiri konur í stjórnunarhlutverkum í fyrirtækjum og stofnunum, fjölgun háskólamenntaðra kvenna og mikilvæg skref í átt að launajafnrétti.

Frá einsleitni til fjölbreytni

Á síðustu 49 árum hefur samfélagið þróast frá einsleitni til fjölbreytni. Á 8. áratugnum var samkynhneigt fólk og annað hinsegin fólk að mestu inni í skápum, útlendingar voru í útlöndum og fatlað fólk var oft inni á heimilum. Fjölgun innflytjenda, aukin réttindi hinsegin fólks og meiri þátttaka fatlaðs fólks á vinnumarkaði og í samfélaginu öllu hefur leitt til aukinnar fjölbreytni og auðgað samfélagið. Felur það í sér að vinna þarf að jafnrétti með víðtækari hætti en áður.

Launamunur kynjanna

Þrátt fyrir að kveðið hafi verið á um jöfn laun karla og kvenna fyrir sömu og jafnverðmæt störf í íslenskri löggjöf í meira en 65 ár er launamunur kynjanna enn staðreynd hér á landi. Samkvæmt mælingum Hagstofunnar var óleiðréttur launamunur kynjanna 9,3 % árið 2023, körlum í vil og jókst frá fyrra ári úr 8,6%. Launamunurinn er ólíkur eftir mörkuðum en það ár var óleiðréttur launamunur kynjanna 13,9% á almennum vinnumarkaði og 8,0% hjá starfsfólki ríkisins en talsvert lægri eða 4,3% meðal starfsfólks sveitarfélaga.

Vanmat á virði kvennastarfa

Ástæður launamunar kynjanna má að stærstum hluta rekja til kynskipts vinnumarkaðar þar sem hin hefðbundnu kvennastörf eru að jafnaði minna metin en hefðbundin karlastörf. Það dugar skammt að bregðast við vanmati kvennastarfa með því að segja konum að vera duglegri að velja sér karllægar greinar, jafnvel þvert gegn sínum vilja og áhuga. Beina þarf sjónum að verðmætamati starfa og tryggja að kvenlægir þættir starfa séu metnir til jafns við hina karlægu og hækka þannig laun hefðbundinna kvennastarfa. Í því felst að meta þarf þætti eins og ábyrgð á fólki, líkamlega færni, jafningjastjórnun, fræðslu og miðlun, samskiptafærni, teymisvinnu, aðgæslu, smithættu, tilfinningalegt álag, trúnað og samkennd, til launa til jafns við þætti eins og fjárhagslega ábyrgð, mannaforráð, líkamlegt álag og fleiri þætti sem einkenna karllæg störf. Til að svo megi vera þarf að leggja mat á inntak starfa út frá þeim kröfum sem gerðar eru í starfi, þeim aðstæðum sem það er unnið innan og þeirri ábyrgð sem það felur í sér. Mikilvægt er að slíkt mat byggi á faglegu og gagnsæju virðismatskerfi sem hefur launajafnrétti að markmiði. Sveitarfélög hafa byggt launasetningu stórs hluta starfa sinna á starfsmatskerfi sem hefur launajafnrétti að markmiði sem dregið hefur úr launamun kynjanna.

Samfélagslegur ávinningur jafnréttis

Áhrif launamisréttis á konur eru augljós. Ef miðað er við óleiðréttan launamun ársins 2023 verða konur með meðallaun af tugum milljóna króna á starfsævinni með tilheyrandi áhrifum á efnahagslega stöðu þeirra alla ævi m.a. vegna lægri greiðslna í lífeyrissjóði. Það er því réttlætismál að leiðrétta þennan mun og koma á launajafnrétti.

Launamisrétti hefur þó víðtækari áhrif en á lífsafkomu þeirra kvenna sem fyrir því verða. Kynbundinn launamunur er meðal þeirra kerfislægu hindrana sem draga úr atvinnuþátttöku kvenna. Ítrekað hefur verið bent á að aukin atvinnuþátttaka kvenna og launajafnrétti hafi jákvæð áhrif á landsframleiðslu og hagvöxt þjóða.

Með því að leiðrétta þann launamun sem af kynskiptum vinnumarkaði stafar og með því að styðja við þá innviði sem stuðla að atvinnuþátttöku kvenna nýtir samfélagið þá þekkingu og reynslu sem konur búa yfir og stuðlar að aukinni fjölbreytni í atvinnulífinu.

Jafnrétti á vinnumarkaði leiðir til hagsældar og aukinna lífsgæða og er lykill að uppbyggingu og mönnun í fræðslu-, heilbrigðis- og velferðarþjónustu til framtíðar.

The post 49 ár appeared first on Jafnlaunastofa.

Munar þig um 47 milljónir?
24. október 2023

Bryndís Guðmundsdóttir, Helga Björg O. Ragnarsdóttir og María Björk Lárusdóttir skrifa:

Í dag eru 48 ár frá því að konur hér á landi lögðu niður störf til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags síns og krefjast viðurkenningar á launuðu og ólaunuðu framlagi kvenna til samfélagsins. Talið er að um 90% kvenna hafi lagt niður störf þennan fyrsta kvennafrídag þann 24. október 1975. Staða kvenna á vinnumarkaði var mun lakari en staða karla og var störfum kvenna að jafnaði raðað í neðri hluta launatöflu meðal annars á þeim forsendum að þær væru ekki fyrirvinnur heimila. Þá þurftu konur (og þurfa sumar enn) samhliða aukinni atvinnuþátttöku að sitja undir ásökunum um vanrækslu gagnvart börnum sínum og heimilum vegna þátttöku á vinnumarkaði. Kvennafríið 1975 hristi upp í íslensku samfélagi og í framhaldinu voru sett fyrstu íslensku jafnréttislögin sem áttu að stuðla að jafnrétti kynjanna á öllum sviðum samfélagsins og kváðu m.a. á um að kynin fengju sömu laun fyrir sömu og jafnverðmæt störf.

Jafnréttisparadísin Ísland?

Síðan þá hafa orðið töluverðar framfarir í jafnréttismálum. Möguleikar kvenna til atvinnuþátttöku hafa aukist samhliða auknu framboð á dagvistunarúrræðum, leikskóla- og frístundaplássum. Hvergi á Vesturlöndum er hlutfall kvenna á vinnumarkaði hærra en á Íslandi og gripið hefur verið til ýmis konar aðgerða til að vinna gegn kynbundnum launamun. Baráttan gegn kynbundnu ofbeldi, vændi og mansali hefur verið styrkt og fæðingarorlof lengt. Konum hefur fjölgað í hópi kjörinna fulltrúa á Alþingi, í sveitarstjórnum sem og í ráðum og stjórnum á vegum hins opinbera og í stjórnum fyrirtækja. Þá hefur Ísland, um nokkurt skeið, vermt efsta sæti á lista Alþjóðaefnahagsráðsins yfir ríki þar sem kynjajafnrétti mælist mest. Þegar þessi þróun er skoðuð í samanburði við þróun víða erlendis kemur ekki á óvart að talað sé um Ísland sem jafnréttisparadís.

Það er full ástæða til að fagna þeim sigrum sem kvenfrelsisbaráttan hefur skilað en það má ekki horfa fram hjá þeirri staðreynd að við eigum enn talsvert í land að jafnrétti hér á landi. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin áætlar að um þriðjungur kvenna í heiminum verði fyrir ofbeldi af hendi karla í nánum samböndum og sýnir áfallasaga kvenna að hlutfallið er nær 40% hér á landi. Þá er launajafnrétti ekki í höfn þó að 65 ár séu liðin frá því Ísland fullgilti jafnlaunasamþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar og skuldbatt sig þannig til að tryggja jöfn laun karla og kvenna fyrir sömu og jafnverðmæt störf.

Launamunur kynjanna

Samkvæmt mælingum Hagstofunnar var óleiðréttur launamunur kynjanna 9,1% árið 2022, körlum í vil. Launamunurinn er ólíkur eftir mörkuðum en það ár var óleiðréttur launamunur kynjanna 13,5% á almennum vinnumarkaði og 9,1% hjá starfsfólki ríkisins en talsvert lægri eða 6,1% meðal starfsfólks sveitarfélaga.

En tölur um óleiðréttan launamun kynjanna segja ekki alla söguna því fleiri aðferðum er beitt til mælinga sem skila ólíkum niðurstöðum. Til viðbótar við árlegar mælingar á óleiðréttum launamun kynjanna vinnur Hagstofan launarannsóknir á nokkurra ára fresti og í síðustu rannsókn kom fram að árið 2019 hafi munur á atvinnutekjum kynjanna verið 25,5%, óleiðréttur launamunur hafi verið 13,9% og leiðréttur launamunur 4,3% körlum í vil. Þessar ólíku aðferðir til mælinga geta valdið ruglingi. Hér er því gerð tilraun til að varpa ljósi á hvað þessar aðferðir við að greina launamun segja okkur á mannamáli.

Hvað segir þetta okkur?

Samanburður á atvinnutekjum karla og kvenna sýnir okkur hversu miklu munar á launagreiðslum kynjanna án tillits til vinnutíma eða annarra þátta. Ef tekið er tillit til vinnutíma fæst hinn svokallaði óleiðrétti launamunur. Með því að nota enn fleiri breytur eins og t.d. menntunarstig, starf, atvinnugrein og tegund fyrirtækis til að skýra launamuninn erum við komin með leiðréttan launamun.

Segja má að munur á atvinnutekjum og óleiðréttum launamun varpi ljósi á félags- og efnahagslegan veruleika kynjanna og afleiðingar hins kynskipta vinnumarkaðar á efnahagslega stöðu kynjanna. Leiðrétti launamunurinn varpar svo ljósi á launamun þegar búið er að taka tillit til og stýra fyrir tilteknum þáttum. Til skýringar má hugsa sér launagreiningu þar sem einungis er leiðrétt fyrir atvinnugrein. Í því tilfelli segir leiðréttur launamunur okkur hver launamunurinn er á kynjunum að frátöldum áhrifum atvinnugreinar á laun.

Tökum dæmi um konu og karl sem eru með sama menntunarstig, búa yfir jafn mikilli starfsreynslu, eru með sömu stjórnunarábyrgð og eru bæði í fullu starfi. Hann í fjármáladeild og hún í velferðarþjónustu. Grunnlaun hans eru 690 þúsund og hennar 610 þúsund, hann fær greidda fasta yfirvinnu fyrir 25 tíma á mánuði en hún fyrir 10 tíma á mánuði. Þá fær hann 30 þúsund á mánuði og hún 10 þúsund á mánuði vegna annarra þátta sem ekki eru skilgreindir nánar.

Heildarlaun hans eru 880 þúsund á mánuði en hennar 681 þúsund á mánuði. Mismunur í grunnlaunum er upp á 70 þúsund sem rekja má til ólíks virðismats starfa þar sem karllægir þættir eins og ábyrgð á fjármálum eru meira metnir en t.d. ábyrgð á velferð fólks. Þá munar 109 þúsund krónum á yfirvinnugreiðslum honum í vil og hann fær 20 þúsund krónum meira en hún vegna annarra óskilgreindra þátta.

Í þessu dæmi er munur á atvinnutekjum 22%, óleiðréttur launamunur er 8% og leiðréttur launamunur 2%. Með því stefna aðeins að því að ná leiðrétta muninum niður, þar sem starf og atvinnugrein eru meðal skýribreyta, er litið fram hjá kynskiptingu vinnumarkaðarins og skökku verðmætamati starfa þar sem hefðbundin kvennastörf eru lægra metin en hefðbundin karlastörf.

Launamunur kynjanna er efnahagslegur veruleiki kvenna

En launamisrétti er ekki aðeins tölfræðilegt viðfangsefni heldur félags- og efnahagslegur veruleiki kvenna sem hefur áhrif á lífsgæði og efnahagslega stöðu þeirra alla ævi.

Fyrir konu með 700.000 krónur í laun á mánuði þýðir 10% launamunur um 80 þúsund krónur á mánuði, 960 þúsund krónur á ári og yfir 47 milljónir króna á starfsævi. Þá eru ótalin áhrifin á lífeyrisgreiðslur og efnahagslega stöðu kvenna á efri árum.

Með þetta dæmi til hliðsjónar má vera ljóst að launamisrétti getur haft gríðarleg áhrif á stöðu, sjálfstæði og fjárhagslegt öryggi kvenna út ævina.

Kynskiptur vinnumarkaður og verðmætamat starfa

Launamun kynjanna má að stærstum hluta rekja til kynskipts vinnumarkaðar. Í því felst að karlar og konur starfa í ólíkum atvinnugreinum og störfum. Hin hefðbundnu kvennastörf eru að jafnaði minna metin en hefðbundin karlastörf. Þannig eru störf í félags-, heilbrigðis- og menntastofnunum að jafnaði verr launuð en störf í bygginga- og fjármálastarfsemi. Í gegnum tíðina hafa konur verið hvattar til menntunar og starfa í hefðbundnum karlagreinum í þeim tilgangi að vinna gegn launamun kynjanna. Þó að það sé í sjálfu sér ágætt leysir það ekki það vanmat sem til staðar er á hefðbundnum kvennastörfum. Nauðsynlegt er að þær aðgerðir sem farið er í til að vinna gegn launamisrétti séu markvissar og beinist að rót vandans.

Leiðrétta þarf skakkt verðmætamat starfa

Til að vinna gegn þeim launamun sem hinn kynskipti vinnumarkaður skapar þarf að beina sjónum að virðismati starfa og rýna til hvaða þátta er litið við launaákvarðanir. Er ábyrgð á velferð fólks metin til jafns við fjárhagslega ábyrgð? Er tilfinningalegt álag metið til jafns við líkamlegt álag? Er litið til þátta eins og áreitni frá þjónustuþegum og smithættu ekki síður en hitastigs og mengunar við mat á vinnuaðstæðum? Ef ekki, hvað veldur því?

Launasetning þarf að byggja á faglegum viðmiðum sem ná til allra starfa með það að markmiði að tryggja réttláta launasetningu fyrir öll líkt og jafnlaunaákvæði laga kveða á um.

Jafnlaunavottun ein og sér tryggir ekki launajafnrétti

Jafnlaunavottun er ætlað að stuðla að launajafnrétti með því að innleiða stjórnunarkerfi sem tryggir faglega og málefnalega launasetningu. Í því felst að atvinnurekendur innleiði viðmið til að nota við mat á virði starfa sem mega ekki fela í sér mismunun. Í staðlinum er ekki fjallað um þær kröfur sem gerðar eru til þessara viðmiða að öðru leyti en því að þau mega ekki fela í sér beina eða óbeina mismunun. Ef þau viðmið sem launasetning byggir á eru ekki þannig úr garði gerð að þau meti kvenlæga þætti starfa til jafns við karllæga þá nýtast þau ekki til að vinna gegn þeim launamun sem stafar af hinum kynskipta vinnumarkaði og vanmati á virði kvennastarfa. Það er því miður ekki óhugsandi að hjá fyrirtækjum sem fengið hafa jafnlaunavottun geti verið til staðar launamunur milli kynjanna vegna skakks verðmætamats starfa.

Jafnréttisbarátta undir áru kynjajafnréttis

Gyða Margrét Pétursdóttir prófessor í kynjafræði hefur fjallað um það félagslega ferli eða fyrirbæri þar sem karlar og konur sannfæra sjálf sig um að jafnrétti ríki þrátt fyrir að raunin sé önnur og kallar það áru kynjajafnréttis. Það er snúið að vinna að aðgerðum í þágu jafnréttis í samfélagi þar sem fólk leyfir sér að trúa því að þess sé ekki þörf þrátt fyrir að fyrir liggi gögn og upplýsingar um hið gagnstæða.

Borið hefur á því að atvinnurekendur vísi til jafnlaunavottunar sem staðfestingar á að launajafnrétti hafi verið náð og styðji þannig við tálsýnina um Ísland sem jafnréttisparadís. Mikilvægt er að taka yfirlýsingum um fullnaðarsigur í jafnlaunamálum með fyrirvara og hvetja atvinnurekendur, sem hafa vilja og metnað til að vinna að launajafnrétti, til að ganga úr skugga um að þau viðmið sem launasetning þeirra byggir á feli í raun í sér að kvenlæg störf séu metin til jafns við hin karllægu. Þannig nýtist jafnlaunastaðallinn sem tæki í þágu launajafnréttis.

The post Munar þig um 47 milljónir? appeared first on Jafnlaunastofa.

Konur á afsláttarkjörum?
24. október 2022

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, skrifar:

Til hamingju með daginn!

Á þessum degi fyrir 47 árum lögðu konur niður launuð sem ólaunuð störf til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna. Þessi ríka kvennasamstaða hefur skilað mörgum mikilvægum áföngum í átt að auknu jafnrétti en staða kynjanna er engu að síður enn ójöfn. Þrátt fyrir áratugalanga baráttu, verulegar samfélagslegar og tæknilegar breytingar búum við enn í samfélagi þar sem framlag kvenna til samfélagsins er að mörgu leyti ósýnilegt, óviðurkennt og vanmetið.

Hitt kynið?

Fjölmörg hafa í gegnum tíðina spurt sig hvernig standi á því að við höfum ekki enn náð að tryggja jafnrétti kynjanna. Leitast hefur verið við að svara því innan flestra fræðisviða, meðal annars með því skora á hólm viðurkenndar kenningar eða nálganir. Það þarf ekki að koma sérstaklega á óvart að meginverkefnið felst gjarnan í því að draga fram kynjablinduna sem einkennir hvert fag um sig. Þrátt fyrir að konur hafi flykkst í nám á undangengnum áratugum voru það karlar sem lögðu grunninn að flestum fræðigreinum sem enn er byggt á í dag. Þegar fræðifólk (þó einkum konur) draga upp á yfirborðið meðvitaða eða ómeðvitaða hlutdrægni í garð kvenna eða fræðileg nálgun þeirra fjallar sérstaklega um stöðu kvenna flokkast það gjarnan sem femínísk nálgun. Dæmi um það er feminísk heimspeki, femínísk hagfræði, femínísk fjármál og svo mætti lengi telja.

Það er umhugsunarefni að enn þann dag í dag þurfi þennan merkimiða á fræðin sem hafa það að markmiði að ná utan um (hinn) helming mannkynsins. Svona svipað og almennt er það tekið fram sérstaklega þegar fjallað er um kvenna-landslið í einhverri íþróttagrein en algengara er að talað sé um landslið án frekari skilgreiningar þegar átt er við karlalið. Eða kvenkokka, kvenleikara, kvenpresta eða kvenrithöfunda. Hins vegar heyrum við ekki um karlkokk, karlleikara, karlprest eða karlrithöfund.

Það minnir óneitanlega á kenninguna um „hitt kynið“, að karlar séu algildir en konur frávik sem standi karlkyni að baki líkt og Simone de Beauvoir skrifaði um fyrir rúmlega 70 árum. Rithöfundurinn Caroline Criado Perez benti nýlega á að gögn og gagnasöfnun, sem er undirstaða flestra ákvarðana sem varða okkar daglega líf, taka sjaldnast tillit til kyns í bók sinni „Ósýnilegar konur“. Litið er á karlkynið sem sjálfgefið en kvenkynið sem frávik. Konur gjaldi þess til dæmis með tíma sínum, peningum og oft heilsu sinni. Nánast engin gagnasöfnun er svo fyrir hendi þegar kemur að kynsegin fólki.

Hver eldar matinn þinn?

Hagfræði hefur veruleg áhrif á stefnumótun og ákvarðanir stjórnvalda, á vinnumarkaði og við lagasetningu. Hagfræði er félagsvísindagrein en áherslan á stærðfræðileg rök í fræðunum leiðir til þess að nálguninni er gjarnan líkt við raunvísindi. Þessi nálgun veitir falskt öryggi þar sem mikilvægir og órjúfanlegir þættir í okkar samfélagi á borð við heilsu, umhverfið og ójöfnuð eru ekki hluti af klassískum hagfræðimódelum. Þá telur launuð sem ólaunuð vinna sem snýr að náinni og persónulegri þjónustu við fólk á borð við umönnun, hjúkrun, menntun eða félagsþjónustu ekki nema að takmörkuðu leyti inn í mælingar um hagvöxt. En það eru einmitt störfin þar sem konur eru í miklum meirihluta.

Þannig skrifar rithöfundurinn Katrine Marçal um hvernig svonefndur faðir hagfræðinnar, Adam Smith tók ekkert tillit til þess hver það var sem eldaði matinn hans þegar hann lagði fram grundvallarspurningu hagfræðinnar árið 1776 um hvernig maturinn okkar verður til. Að öðru leyti rekur hann ítarlega þann fjölda einstaklinga svo sem bændur og kjötverkamenn, og verkaskiptingu þeirra á milli, sem þarf til að við getum gengið að því vísu að geta daglega keypt í matinn. En hann minnist ekki á mömmu sína sem bjó með honum alla hans ævi og hefur að öllum líkindum eldað allar máltíðir hans. Enda byggði kenning Smith um frjálsan markað á því að hvati fólks séu eiginhagsmunir en ekki velvild í garð samborgara eða vilji til að leggja eitthvað gott til samfélagsins. Hún gerði jafnframt ráð fyrir að einstaklingar sem sáu m.a. um heimili, veika ættingja, börn og matreiðslu hefðu lítið sem ekkert til verðmætanna að leggja. Þessir einstaklingar voru langoftast konur. Þeirra störf voru ólaunuð og ósýnileg í skilgreiningum á verðmætum samfélagsins.

Þó mjög margt hafi breyst í hagfræðinni á nærri 250 árum er staðan enn sú að fjölmargt sem við teljum mikilvægt og ómissandi í okkar samfélagi í dag telst ekki til verðmæta samkvæmt þeim hefðbundnu mælikvörðum sem notast er við og algengt er að séu lagðir til grundvallar við ákvörðunartöku sem mótar líf okkar. Svo er hitt að ekki er hægt að mæla allt það sem telst mikilvægt fyrir okkur sem samfélag og það sem er mælanlegt er ekki endilega alltaf það sem er mikilvægast. Byggt á þessu hefur hagfræðingurinn Mariana Mazzucato ítrekað bent á mikilvægi þess að stjórnvöld marki sér skýra sýn um hvernig samfélag þau vilji stuðla að, allar ákvarðanir þeirra taki mið af því markmiði og þannig móti þau samfélagsgerðina.

Kvenna-kjarasamningar

Í dag vitum við að ein meginskýringin á launamun kynjanna er vegna þess hve kynskiptur vinnumarkaðurinn er. Í því felst meðal annars að konur og karlar gegna ólíkum störfum á vinnumarkaði og kynjaskipting milli starfsgreina er áberandi. Konur eru í miklum meirihluta starfsfólks á opinberum vinnumarkaði líkt og í heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu og menntakerfinu. Laun karla eru þó alltaf hærri en kvenna óháð því hvort þeir starfa á almennum eða opinberum vinnumarkaði. Þetta hefur verið vitað í lengri tíma án þess að gripið hafi verið til markvissra aðgerða. Það er líkt og samfélagið telji sjálfsagt að konur haldi uppi velferðinni á afsláttarkjörum. Lengi lifir í gömlum glæðum úr sér genginna hagfræðikenninga. Þessi staða kallar á nýjan samfélagssáttmála.

Það er því fagnaðarefni að stjórnvöld hafi lýst því í yfir, í tengslum við gerð kjarasamninga aðildarfélaga BSRB og ríkis og sveitarfélaga í mars 2020, að skipaður yrði starfshópur sem hefur nú skilað tillögum sínum að aðgerðum til að útrýma launamun sem stafar af kynskiptum vinnumarkaði. Yfirlýsingin er mikilvæg fyrir þær sakir að ríkisstjórnin viðurkennir vanmat á virði kvennastarfa og lagt er upp með aðgerðir til að leiðrétta það. Um þessar mundir er starfandi aðgerðarhópur um launajafnrétti sem skipaður var af forsætisráðherra sem hefur það hlutverk að byggja upp þekkingu, prufa sig áfram í nýjum leiðum að virðismati og búa til verkfæri til að leiðrétta skakkt verðmætamat kvennastarfa.

En meira þarf til svo við getum breytt rótgróinni menningu sem leiðir til kerfisbundins misréttis. Veruleiki kvenna og kynsegin fólks þarf að vera jafn sjálfsögð forsenda hvers kyns rannsókna, fræða eða ákvörðunartöku og veruleiki karla. Tilvera þeirra er ekki frávik frá meginstrauminum.

Við getum tekið stökk í átt að auknu jafnrétti með því að sameinast um að árið 2023 verði kvennaár. Það verði árið þar sem öll taka höndum saman og velta við öllum steinum til að afhjúpa og stöðva misrétti og kynbundið ofbeldi á vinnustöðum, í opinberum fjármálum, í fræðunum og kennslu, í gegnum gögn og gagnasöfnun og samfélaginu öllu og með markvissum aðgerðum. Það verði árið sem við gerum kvenna-kjarasamninga til að afsláttarkjör heyri sögunni til og við leiðréttum vanmat á störfum kvenna.

The post Konur á afsláttarkjörum? appeared first on Jafnlaunastofa.

Það munar um minna
24. október 2022

Helga Björg O. Ragnarsdóttir, framkvæmdastýra Jafnlaunastofu, skrifar:

Það eru hátt í 70 ár frá því Ísland fullgilti jafnlaunasamþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar hér á landi og skuldbatt sig þannig til að tryggja jöfn laun karla og kvenna fyrir jafnverðmæt störf. Árið 1961 var launajafnrétti lögfest hér á landi og kvenna- og karlataxtar þar með aflagðir. Fyrstu almennu lögin um jafnrétti karla og kvenna tóku gildi árið 1976 og hafa konur og karlar búið við formlegt jafnrétti að lögum frá því þá.

Samt sem áður bera konur enn minna út býtum en karlar fyrir framlag sitt á vinnumarkaði. Þetta sýnir launarannsókn Hagstofunnar frá 2021. Samkvæmt henni var munur á atvinnutekjum karla og kvenna 25,5%, óleiðréttur launamunur kynjanna 13,9% og leiðréttur launamunur 3,6% árið 2019.

Launamunur kynjanna er sú birtingarmynd kynjamisréttis sem hvað auðveldast er að mæla og liggja því fyrir fjölmargar rannsóknir og kannanir sem allar eru meira og minna á einn veg, það; hallar á konur. Samt sem áður er opinber umræða um launamun kynjanna langt frá því að endurspegla umfang vandans. Það er eins og við séum orðin ónæm fyrir upplýsingum um launamun og skiljum ekki alltaf hvað tölurnar þýði í raun og veru. Misvísandi og ruglingsleg hugtakanotkun í tengslum við launamun kynjanna getur afvegaleitt umræðu um launajafnrétti. Það er því tilraunarinnar virði að varpa örlitlu ljósi á hvað þær tölur sem hér settar eru fram segja okkur.

Með mjög einfölduðum hætti má segja að samanburður á atvinnutekjum karla og kvenna sýni okkur hversu miklu munar á launagreiðslum til karla og kvenna að meðaltali án tillits til vinnutíma starfs, menntunar, atvinnugreinar o.s.frv. Ef tekið er tillit til vinnutíma fæst hinn svokallaði óleiðrétti launamunur og með því að nota enn fleiri breytur eins og t.d. menntunarstig, starf og atvinnugrein til að skýra launamuninn erum við komin með leiðréttan launamun.

Dæmi: Kona fær 700.000 í laun á mánuði. Karl fær 850.000 krónur í laun á mánuði. Munur á atvinnutekjum er 150.000 krónur á mánuði.

Karlinn vinnur fleiri vinnustundir en konan sem skýrir 30.000 króna mun og er óleiðréttur launamunur því 120.000 krónur á mánuði.

Þau eru á sama menntunarstigi og sambærileg að öðru leyti en því að karlinn er í hefðbundnu karlastarfi á fjármálasviði en konan í hefðbundnu kvennastarfi í félagsþjónustu. Hennar starf er með 90.000 krónum lægri grunnröðun. Eftir stendur munur upp á 40.000 krónur á mánuði sem ekki er hægt að skýra og er því skilgreindur sem leiðréttur launamunur.

Niðurstaðan í þessu dæmi er 18% tekjumunur, óleiðréttur launamunur er 14% og leiðréttur launamunur er 5% karlinum í hag.

Í þessu tilbúna dæmi skýra ólík störf og starfsgreinar drjúgan hluta launamunarins, en rannsóknir sýna að launamun kynjanna má að mestu rekja til þess að hér á landi er vinnumarkaðurinn kynjaskiptur. Karlar og konur starfa í ólíkum atvinnugreinum og ólíkum störfum þar sem kvennastörf eru að jafnaði metin minna virði en karlastörf.

Í ljósi þess er mikilvægt að við séum meðvituð um að ólíkar nálganir á launamuninn varpi ljósi á mismunandi þætti hans. Með nokkurri einföldun má segna að munur á atvinnutekjum og óleiðréttur launamunur varpi ljósi á félagslegan og efnahagslegan veruleika kynjanna. Leiðrétti launamunurinn varpar svo ljósi á hvaða þættir aðrir en vinnutími það eru sem skýrt geta launamuninn. Ef einblínt er á leiðrétta muninn er horft fram hjá kynskiptingu vinnumarkaðarins og skökku verðmætamati starfa þar sem hallar á konur og hefðbundin kvennastörf. Með því að beina sjónum að óleiðrétta launamuninum og muni á atvinnutekjum kynjanna færist athyglin að félagsgerðinni þar sem konur bera minna úr býtum en karlar fyrir launað vinnuframlag sitt vegna kynskipts vinnumarkaðar og vanmats á virði starfa þeirra.

Það er löngu tímabært að uppræta launamisrétti. Til þess þarf að ráðast að rót vandans og endurskoða virðismat starfa. Í því felst ýtarleg skoðun á fyrirkomulagi og forsendum launasetningar þar sem greint er til hvaða þátta er litið við launaákvarðanir. Hvort megináhersla er á mannaforráð og fjárhagslega ábyrgð eða hvort ábyrgð á velferð fólks er metin til jafns við fjárhagslega ábyrgð, hvort tilfinningalegt álag er metið til jafns við líkamlegt álag og svo framvegis. Launasetning á að byggja á faglegum viðmiðum sem ná til allra starfa með það að markmiði að leiðrétta kerfislægt vanmat kvennastarfa.

Launamisrétti er ekki tölfræðilegt úrlausnarefni sem við getum gefið okkur tíma til að kryfja og ræða. Launamisrétti er félagslegur og efnahagslegur veruleiki kvenna sem hefur áhrif á lífsgæði og efnahagslega stöðu þeirra alla ævi og þarf því að uppræta strax. Fyrir konu með 700.000 krónur í laun á mánuði þýðir 14% launamunur um 115.000 krónur á mánuði, 1,4 milljónir króna á ári og yfir 60 milljónir króna á starfsævi. Þá eru ótalin áhrifin á lífeyrisgreiðslur og efnahagslega stöðu kvenna á efri árum. Það munar um minna!

The post Það munar um minna appeared first on Jafnlaunastofa.

Kvenna­frí­dagurinn – inn­blástur til breytinga
24. október 2022

Elva Hrönn Hjartardóttir, stjórnmálafræðingur og vinnur hjá stéttarfélagi, skrifar:

Í dag er Kvennafrídagurinn og þó að orðið sjálft hljómi eins og dásamlegt frí fyrir konur með heitri sól, hvítum ströndum og tilheyrandi tásumyndum er raunin hins vegar ekki sú. Kvennafrí er ákall um samstöðu og breytingar, áminning um að á vinnumarkaðnum viðgengst kynbundið (launa)misrétti sem lengi hefur fengið að þrífast, sérstaklega í ákveðnum atvinnugreinum. Kvennafrídagurinn var fyrst haldinn þann 24. október árið 1975 á degi Sameinuðu þjóðanna sem tileinkuðu það ár málefnum kvenna. Þennan dag lögðu langflestar konur niður störf og fjölmenntu baráttufundi sem haldnir voru um land allt og var þátttaka svo mikil að viðburðurinn vakti heimsathygli. Sjálf var ég ekki fædd þennan dag en ég get rétt ímyndað mér samstöðuandann sem þarna hefur ríkt. Síðan þá hefur kvennafrídagurinn verið haldinn fimm sinnum, nú síðast árið 2018 en þá stóð ég með dóttur minni og tengdamóður á Arnarhóli ásamt fjölda fólks sem var mætt til að krefjast jafnréttis á vinnumarkaðnum og samfélaginu öllu. Síðan eru liðin fjögur ár og enn þrífst kynbundið misrétti og -ofbeldi og óútskýrður launamunur kynjanna á íslenskum vinnumarkaði.

Konur í sjálfboðavinnu á vinnumarkaðnum

Allt frá því að kvennahreyfingin hrærði upp í þjóðfélaginu upp úr 1980 með kröfum sínum um aukin réttindi fyrir konur og börn hefur atvinnuþátttaka kvenna á Íslandi aukist og er nú með þeim hæstu meðal OECD ríkjanna, eða um 87% prósent.[1] Þrátt fyrir þessa mikilvægu þróun á vinnumarkaði og í jafnréttismálum hafa konur alltaf mætt miklu misrétti í atvinnulífinu og þá sérstaklega hvað varðar laun og tækifæri. Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands um launamun kynjanna eru konur með 21,9% lægri meðalatvinnutekjur miðað við meðalatvinnutekjur karla. Það þýðir að að konur vinna launalaust eftir kl. 15:15, sé miðað við fullan vinnudag frá kl. 9:00 -17:00. Fyrir þessu er engin ástæða sem hægt er að útskýra, nema kyn fólks og val kynjanna á námi og starfi.

Skýrður eða leiðréttur launamunur er sá munur á launum sem orsakast meðal annars af starfshlutfalli, yfirvinnu, menntun og starfsreynslu. Í gegnum tíðina hafa konur frekar sinnt hlutastörfum en karlar og gera enn. Það má meðal annars rekja til þess að konur hafa að mestu haldið utan um önnur störf eins og heimilisstörf og umönnun barna og annarra fjölskyldumeðlima. Þessi störf, sem í dag eru gjarnan kölluð þriðja vaktin, eru með öllu ólaunuð og hafa hingað til ekki fengið þá viðurkenningu sem þau ættu að fá og eru ekki metin til lífeyris. Þar af leiðir að þegar kemur að efri árunum hafa konur lægri lífeyristekjur en karlar. Þetta á líka við um konur sem hafa tekið fæðingarorlof á sinni starfsævi. Misréttið heldur áfram að starfsævinni lokinni.

Óútskýrður eða óleiðréttur launamunur er það sem eftir stendur þegar búið er að taka inn í myndina þá þætti sem taldir eru upp hér að ofan og ber hann nafn með rentu. Það er ekkert sem ústkýrir þennan launamun – nema þá kyn fólks líkt og áður sagði. Komast má að þeirri niðurstöðu með því að líta yfir ákveðnar atvinnugreinar á vinnumarkaði. Í þeim atvinnugreinum þar sem konur eru meirihluti starfsfólks, svokölluð hefðbundin kvennastörf, eru laun almennt lægri en í þeim atvinnugreinum þar sem karlar eru í meirihluta. Þó er hefð fyrir því að karlar sem sinna hefðbundnum kvennastörfum fái hærri laun en konur í sambærilegum störfum.

Áþreifanleg verðmæti umfram heilsu og vellíðan fólks

Hefðbundin kvennastörf eiga það sameiginlegt að þeirra verðmætasköpun er sjaldnast áþreifanleg og þau hafa hingað til verið vametin á kerfislægan hátt. Þeim fylgir mikið áreiti, andlegt og líkamlegt álag og margir boltar sem þarf að halda á lofti í einu, sem leiðir oft til kulnunar í starfi. Undir þessi störf falla til dæmis störf kennara, heilbrigðisstarfsfólks (þá aðallega hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða) og önnur umönnunarstörf, störf verkafólks og störf verslunarfólks. Allt eru þetta þó störf sem þarf að sinna eigi samfélagið okkar að ganga. Innan hefðbundinna karlastarfa þrífast launahækkanir, arð- og bónusgreiðslur og þau einkennast af því að þau skila af sér áþreifanlegum verðmætum sem auðvelt er að meta til fjár. Þetta eru að mestu störf í tækni- og fjármálageiranum og verk- og iðngreinar. Við þurfum líka á þessum störfum að halda í samfélaginu okkar en við hljótum engu að síður að meta menntun, vellíðan og velferð fólks til jafns við-, eða jafnvel meira en peninga eða hvað?

Kynbundin störf og -laun eru tímaskekkja sem þarf að leiðrétta

Launamismunur kynjanna er raunverulegt vandamál sem hefur fengið að þrífast á vinnumarkaði frá upphafi. Kerfið okkar, staðalmyndir og rík menning launaleyndar á vinnustöðum sjá til þess að svo sé, en launaleynd lifir enn góðu lífi þrátt fyrir að árið 2008 hafi fólki verið gert heimilt með lögum að skýra frá launakjörum sínum ef það kýs að gera svo.[2] Til allrar lukku er kerfið þó ekki óviðráðanlegur mekanismi með sjálfstæða hugsun. Við erum kerfið og við getum breytt því til hins betra. Til þess þarf þó hugarfarsbreytingu og sameiginlegt átak vinnumarkaðarins, stjórnvalda og okkar allra. Látum Kvennafrídaginn verða okkur innblástur til breytinga og útrýmum kynjamisrétti á vinnumarkaði sem og utan hans og leiðréttum skakkt verðmætamat.

The post Kvenna­frí­dagurinn – inn­blástur til breytinga appeared first on Jafnlaunastofa.

Fjögur þúsund milljarðar á 47 árum
24. október 2022

Sóley Tómasdóttir skrifar:

Þann 24. október 1975 lögðu næstum allar konur á Íslandi niður störf í fyrsta skipti. Verksmiðjur lömuðust, símsvörun og fiskvinnsla lagðist af. Heimilisstörf voru vart unnin.

Hjúkrun og umönnun aldraðra og veikra var í lágmarki. Börn dúkkuðu upp á vinnustöðum sem sjaldan eða aldrei höfðu fengið slíkar heimsóknir. Margir karlar þreyttu frumraun sína í bleiuskiptum, kartöflusuðu og eggjaspælingum.

Kvennaverkfallið 1975 var einhver besta afurð kvennasamstöðunnar. Útifundur dagsins, sá stærsti í Íslandssögunni, var skipulagður af konum sem höfðu löngu fengið nóg af því að framlag karla til samfélagsins þætti verðmætara en framlag kvenna.

Sex kvennaverkföll

Síðan hafa verið haldin sex kvennaverkföll, það næsta árið 1985. Þá var haldin sýning í hálfkaraðri byggingu sem nú hýsir Seðlabankann. Sýningin hét Kvennasmiðja, konan – vinnan – kjörin, og veitti fólki innsýn í atvinnuþátttöku kvenna í samfélaginu. Aftur skundaði mikill fjöldi kvenna á Lækjartorg þar sem þær kröfðust raunverulegs launajafnréttis. Lög um jafnrétti kvenna og karla, sem sett höfðu verið í kjölfar fundarins 10 árum áður, höfðu ekki náð markmiði sínu.

Árin 2005 og 2010 slógu konur eigin met í stærð útifunda í tvígang þegar um og yfir 50.000 konur söfnuðust saman í miðbænum með sömu kröfu á lofti; raunverulegt launajafnrétti sem enn var langt utan sjónmáls. Árin 2016 og 2018 var yfirskriftin „Kjarajafnrétti strax“ og áhersla lögð á að það þyrfti ekki að breyta konum, heldur samfélaginu.

Fjögur þúsund milljarðar

Það eru 47 ár liðin síðan fyrstu konurnar lögðu niður störf. Rúmlega ein starfsævi. Skoðum hvað hefur gerst síðan þá. Ef við gerum ráð fyrir 14% launamun, 500.000 króna meðaltekjum á mánuði að núvirði og 90.000 konum á vinnumarkaði (sem er allt varlega áætlað), þá hefur:

– Hver þessara kvenna orðið af 80.000 krónum á mánuði.

– Hver þessara kvenna orðið af einni milljón króna á ári, eða 46 milljónum alls.

– Samfélagið sparað sér rúma 4000 milljarða með því að snuða þessar 90.000 konur.

Eðlileg krafa

Í stað þess að koma til móts við kröfur formæðra okkar árið 1975 hafa stjórnvöld og atvinnurekendur dundað sér við að skrifa og stagbæta lög, stofna og afleggja nefndir og setja starfshópa í skýrslugerð aftur og aftur og aftur og aftur. Þrátt fyrir það komast atvinnurekendur enn upp með að taka sér ólöglegan afslátt af vinnuframlagi kvenna. Samfélagið greiðir aðeins fyrir brot af framlagi kvenna til uppeldis, þrifa, umönnunar og hjúkrunar, að ekki sé minnst á skipulag og utanumhald með öllu þessu.

Mín vegna þarf hvorki að leggja mikla vinnu í kröfugerð fyrir komandi kjarasamninga né viðræður um sanngirni. Lög, reglur, starfshópar, nefndir og skýrslur eru öll á einu máli. Það þarf að leiðrétta verðmætamat samfélagsins og greiða konum sanngjörn laun fyrir það sem þær inna af hendi.

The post Fjögur þúsund milljarðar á 47 árum appeared first on Jafnlaunastofa.

Kynbundið launamisrétti: Að spara til tjóns í jafnréttis- og velferðarmálum
24. október 2022

Steinunn Rögnvaldsdóttir, Finnborg Salome Steinþórsdóttir, Auður Inga Rúnarsdóttir, Steinunn Bragadóttir, Sigríður Finnbogadóttir og Freyja Barkardóttir, stjórnarkonur í feminískum fjármálum, skrifa:

Ef þið eigið leið um kirkju­garð þann 24. októ­ber og heyrið djúpa skruðn­inga, þá viljum við að þið vitið að það er ekk­ert að ótt­ast. Þetta eru bara kon­urnar sem gengu út á kvenna­frí­dag­inn 1975 og hafa síðan þá yfir­gefið vist­ar­verur þessa heims, að snúa sér í gröf­inni yfir því að hingað séum við kom­in, 47 árum síð­ar, og launa­munur kynj­anna sé enn til stað­ar.

Það er kannski engin ástæða til að óttast, en það er ástæða til að vera reið. Jafn­vel bál­reið. Það er óásætt­an­legt hve hægt gengur að upp­ræta kyn­bundið launa­mis­rétti. Hið sama má segja um aðrar áskor­anir í jafn­rétt­is­mál­um, eins og ójafna umönn­unará­byrgð kynj­anna og heilsu­brest kvenna tengdan sér­stöku álagi í starfi og einka­lífi, sem og kynj­aðri hlut­drægni í heil­brigð­is­kerf­inu þar sem ákveðnir sjúk­dómar kvenna mæta algerum afgangi. Þessi vanda­mál verða ekki slitin úr sam­hengi við hvert annað –  sam­fé­lag sem skammtar sjálfu sér ríf­legan afslátt þegar kemur að launa­setn­ingu kvenna­stétta beitir sama skeyt­ing­ar­leysi þegar að kemur að því að jafna umönn­unará­byrgð kynj­anna og veita full­nægj­andi heil­brigð­is­þjón­ustu til fólks af öllum kynj­um, svo nokkuð sé nefnt. Launa­mis­réttið er bein­tengt, ýtir undir og við­heldur öðru mis­rétti og það er enn ein ástæðan til að upp­ræta það.

Kyn­bundið launa­mis­rétti má rekja að mestu leyti til kyn­bund­innar skipt­ingar í störf og atvinnu­greinar. Í jafn­launa­á­kvæði jafn­rétt­islaga, sem tók í gildi árið 2021, er kveðið á um að kon­um, körlum og fólki með hlut­lausa skrán­ingu kyns skulu greidd laun og njóta sömu kjara fyrir sömu eða jafn verð­mæt störf. Jafn­virð­is­nálgun jafn­launa­á­kvæð­is­ins felur í sér þörf á að leið­rétta virð­is­mat hefð­bund­inna kvenna­starfa. Við bindum miklar vonir við störf aðgerða­hóps um launa­jafn­rétti og jafn­rétti á vinnu­mark­aði og að lagðar verði fram lausnir sem bindi enda á hið vand­ræða­lega tíma­bil grass­er­andi launa­munar kynja í jafn­réttisparadís­inni Ísland­i.

Við í félag­inu Femínísk fjár­mál höfum áhyggjur af fjár­mögnun þeirra aðgerða sem óhjá­kvæmi­legt mun verða að ráð­ast í ef leið­rétta á virð­is­mat kvenna­starfa. Það hefði verið ákjós­an­legt að sjá þess ítar­legri merki að stjórn­völd und­ir­búi þessa leið­rétt­ingu með til­liti til tekju­öfl­un­ar, líkt og við bendum á umsögn okkar um fjár­laga­frum­varp fyrir árið 2023. Fyr­ir­hyggju­leysi getur skapað kerf­is­læga áhættu fyrir rík­is­sjóð. Kostn­að­ur­inn vegna aft­ur­virkrar launa­leið­rétt­ingar ef til dóms­máls kæmi, sem ríkið ætti á hættu að tapa, gæti numið millj­arða króna fyrir rík­is­sjóð sbr. alþjóð­lega þróun og dóma­fram­kvæmd. Á Nýja-­Sjá­landi leiddi dóms­mál árið 2013 til 14-49% launa­leið­rétt­ingu heillar starfs­stéttar og nam kostn­aður u.þ.b. 180 ma. kr. Það er ekki aðeins rétt­læt­is­mál að ráð­ast strax í aðgerðir til að leið­rétta verð­mæta­mat kvenna­starfa, heldur einnig skyn­sam­leg efna­hags­stjórnun að atvinnu­rek­endur hætti að veita sjálfum sér afslátt við launa­setn­ingu kvenna eins og við­geng­ist hefur ára­tugum sam­an.

Auk þess að leið­rétta virð­is­mat þarf að huga að aðbún­aði og álagi sem margar kvenna­stéttir búa við, t.d. á Land­spít­al­an­um. Nýr Land­spít­ali kemur ekki til með að leysa þann vanda sem til staðar er að fullu og bæta verður í fjár­veit­ingar til að leysa þann mann­eklu­vanda og álag sem mynd­ast hefur í heil­brigð­is­kerf­inu á síð­ustu árum. Hér á landi er skortur á heil­brigð­is­starfs­fólki og er mönnun heil­brigð­is­þjón­ust­unnar for­senda þess að hægt sé að veita örugga og skil­virka heil­brigð­is­þjón­ustu.

Það er óskyn­sam­legt og ósjálf­bært að fjár­festa í menntun lækna, hjúkr­un­ar­fræð­inga og sjúkra­liða en hlúa svo illa að stétt­unum að fólkið sem þar starfar treystir sér ekki til að sinna störfum vegna starfs­að­stæðna, lík­am­legs og and­legs álags og streitu. Í októ­ber 1975 gengu konur út, en síð­ustu miss­eri höfum við líka séð konur ganga út úr störfum í heil­brigð­is­kerf­inu – og ekki koma aft­ur.

Óvið­un­andi aðstæður á vinnu­mark­aði, auk umönn­unará­byrgðar og kyn­bund­ins ofbeld­is, eru meðal þeirra áhrifa­þátta sem hugs­an­lega skýra mikla fjölgun örorku­líf­eyr­is­þega á meðal kvenna 50–66 ára. Á sama tíma og stjórn­völd þurfa að bregð­ast við áskor­unum vegna öldr­unar þjóð­ar­inn­ar, m.a. því að útlit er fyrir mik­illi hlut­falls­legri fjölgun fólks á eft­ir­launa­aldri og hlut­falls­lega minni fjölgun meðal fólks á vinnu­mark­aði, er veru­lega óskyn­sam­legt að fjár­festa ekki í aðgerðum sem geta komið í veg fyrir brott­hvarf kvenna af vinnu­mark­aði langt fyrir aldur fram. Við þurfum á öllum að halda. Þrátt fyrir að aðgerðir til að bregð­ast við þessu geti verið kostn­að­ar­samar þá munu þær ekki aðeins leiða til jákvæðra breyt­inga fyrir stórar kvenna­stétt­ir, heldur til lengri tíma einnig til jákvæðra efna­hags­legra áhrifa, s.s. auk­inna tekna rík­is­sjóðs vegna auk­innar atvinnu­þátt­töku og minni útgjalda vegna almannatrygg­inga og heil­brigð­is­þjón­ust­u.

Femínísk fjár­mál hafa bent á að til að ráð­ast í aðgerðir sem hafa mikið gildi fyrir jafn­rétti og sam­fé­lags­lega vel­ferð, verður fjár­mögnun að vera full­nægj­andi. Í fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2023 boðar rík­is­stjórnin í reynd nið­ur­skurð næstu árin með áherslu á að stemmt verði stigu við auknum eða nýjum útgjöldum og aðhalds­kröfum sem þar koma fram. Ekki sjást merki tekju­öfl­unar sem leið­togar tveggja rík­is­stjórn­ar­flokka hafa talað fyr­ir, svo sem hval­reka­skattur, hækkun veiði­gjalda og hækkun skatta á fjár­magnstekj­ur. Það er nokkuð sér­stakt að stefna for­ystu­fólks rík­is­stjórn­ar­innar sé svo fjar­ver­andi í frum­varp­inu og að aðal styrk­ing á tekju­hlið frum­varps­ins sé hækkun skatta á neyslu ein­stak­linga, sem óhjá­kvæmi­lega mun koma verr við tekju­lægri hópa. Stjórn­völd verða að taka verk­efnið alvar­lega, beita for­gangs­röðun og sann­gjarnri tekju­öflun til að spara sig ekki til tjóns í jafn­rétt­is- og vel­ferð­ar­mál­um.

The post Kynbundið launamisrétti: Að spara til tjóns í jafnréttis- og velferðarmálum appeared first on Jafnlaunastofa.

Kvennafrí
24. október 2022

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi, formaður sambands íslenskra sveitarfélaga, varaformaður Samfylkingarinnar, skrifar:

Í dag eru 47 ár frá kvennafrídeginum þegar konur lögðu niður störf og kröfðust launajafnréttis. Kvennafrídagurinn sýndi mátt kvennasamstöðunnar í verki. Kvennasamstaðan er magnað fyrirbæri sem hefur verið hreyfiafl mikilvægra samfélagsumbóta í þágu jafnréttis og mannréttinda. Engu að síður búa konur hér á landi enn við launamisrétti sem rekja má að mestu til kynskipts vinnumarkaðar og vanmats á virði kvennastarfa.

Hvernig gengur ?

Samkvæmt launarannsókn Hagstofunnar var óleiðréttur launamunur kynjanna 14,8% á almennum vinnumarkaði, 14,0% hjá ríkisstarfsmönnum og 7,4% meðal starfsfólks sveitarfélaga árið 2019. Það er óþolandi að nú hátt í 70 árum eftir lögfestingu launajafnréttis hér á landi sé staðan þessi.

Virði starfa

Beina þarf sjónum að virðismati starfa. Launajafnrétti næst ekki nema launasetning byggi á heildstæðu mati starfa þar sem litið er til þátta eins og ábyrgðar á fólki, tilfinningalegu álagi, vinnuumhverfi, og samkenndar til jafns við mannaforráð og ábyrgð á fjármálum. Þó að launajafnrétti á vettvangi sveitarfélaga hafi ekki verið náð skera sveitarfélög sig úr með næstum helmingi lægri launamun er aðrir markaðir.

Leið sveitarfélaga

Sérstaða sveitarfélaganna á sér án efa margvíslegar skýringar. Ein þeirra er vafalaust sú að frá aldamótum hafa sveitarfélögin beint sjónum að verðmætamati starfa og notast við starfsmatskerfi við mat á störfum. Í því felst að mat á virði starfa byggir á samræmdum viðmiðum sem leitast er við að feli ekki í sér kynjaskekkju Starfsmatskerfið nær aðeins til grunnlauna starfa og verk að vinna að vinna hvað varðar viðbótarlaunin. Um þessar myndir er aukin áhersla á virðismat starfa og er því full ástæða til að líta til reynslu sveitarfélaganna af notkun starfsmatskerfis í þeirri vegferð.

Launamisrétti þarf að uppræta því þessi félagslegi og efnahagslegi veruleiki kvenna hefur áhrif á lífsgæði og efnahagslega stöðu þeirra alla ævi. Við það verður ekki unað fyrr en fullt jafnrétti næst.

Til hamingju með daginn!

The post Kvennafrí appeared first on Jafnlaunastofa.

Upp­rætum kerfis­bundið van­mat á störfum kvenna
24. október 2022

Friðrik Jónsson, formaður BHM, og Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, formaður jafnréttisnefndar BHM, skrifa:

Í dag eru 47 ár síðan konur á Íslandi gengu fyrst út á kvennafrídegi. Þá notuðu tugþúsundir kvenna fæturna til að mótmæla því kerfislæga misrétti sem þær eru beittar á vinnumarkaði. Nærri hálfri öld síðar er enn ástæða til að ganga út. Þrátt fyrir þrotlausa baráttu bæði femínísku hreyfingarinnar og verkalýðshreyfingarinnar eru konur enn með 21,9% lægri atvinnutekjur en karlar að meðaltali. Miðað við fullan vinnudag þýðir það að konur hafa unnið fyrir laununum sínum klukkan 15:15 í dag.

Í aldaraðir hefur konum verið gert að niðurgreiða eigið vinnuframlag. Að veita afslátt af vinnu sinni, þjónustu og umhyggju án þess að hafa um það nokkuð val. Því verður að linna.

Í dag er ein helsta ástæða kynbundins launamunar sú að fjöldi fólks sem starfar við umönnun, heilbrigðisþjónustu og menntun er illa launað. Við þekkjum öll hina hina hefðbundnu möntru að almenni markaðurinn haldi þeim opinbera uppi því hinn fyrrnefndi skapi verðmætin. Ef við tölum tæpitungulaust þýðir slíkt tal að þau verkefni sem sinnt er af hinu opinbera sé í raun til byrði en ekki uppbyggingar. Slík orðræða er röng. Þessi störf eru að stærstum hluta unnin af konum og eru grundvöllur hagsældar og hagvaxtar hér á landi. Þessi störf eru undirverðlögð. Störf kvenna eru ekki enn metin að verðleikum, hvorki hér á landi né annars staðar í heiminum.

Sjötíu prósent opinberra starfsmanna eru konur. Aðilar á vinnumarkaði sem tala niður virði, tilgang og mikilvægi opinberrar þjónustu eru í raun og veru að tala gegn mikilvægi, verðmæti og réttu virðismati á vinnuframlagi og verðmætasköpun kvenna.

Þessi söngur heldur linnulaust áfram. Þó hefur reynsla okkar af heimsfaraldri síðustu tvö árin sýnt og sannað að verðmætasköpun, hvort heldur sem á almennum eða opinberum markaði, sé algjörlega háð því að fólk, aðallega konur, haldi áfram að mæta til vinnu. Mæti þrátt fyrir veirur, smittölur, stöðu á gjörgæsludeildum og dánartíðni. Án kvennanna sem starfa við menntun, heilbrigðisþjónustu, umönnun og stjórnsýslu hefði þjóðfélagið stöðvast og staðnað.

Á meðan faraldurinn geisaði hér á landi lifði samfélagið af tímabundið tap 20 þúsund starfa á almennum markaði. Þjóðin hefði hins vegar aldrei lifað af sambærilegt tap á opinberum markaði. Þar voru hreinlega mannslíf að veði, framtíð þjóðar og fullveldi.

Það er löngu tímabært að við upprætum kynjamisrétti úr íslensku samfélagi. Öll þurfa að taka þátt í þeirri baráttu; við í verkalýðshreyfingunni, fulltrúar launagreiðenda og stjórnvöld. Tökum höndum saman og leiðréttum skakkt verðmætamat og hættum að gefa afslátt af störfum kvenna. Við verðum að meta störf kvenna að verðleikum í eitt skipti fyrir öll.

The post Upp­rætum kerfis­bundið van­mat á störfum kvenna appeared first on Jafnlaunastofa.