Starfsmat
Umsókn um nýtt mat
Þú getur sótt um mat á nýju starfi hér á vefnum. Athugaðu að umsókn á nýju mati á starfi er einungis fyrir launagreiðendur, þ.e. sveitarfélög
1. Hvað er nýtt mat?
Þegar nýtt starf verður til er mjög mikilvægt að skilgreina strax í upphafi helstu kröfur, innhald og markmið starfsins í starfslýsingu. Starfsmaður þarf að hafa unnið að lágmarki í hálft ár í nýju starfi áður en hægt er að óska eftir starfsmati.
2. Hvaða fylgigögn þarf að senda inn?
Til að beiðni teljist gild þarf að fylgja henni;
- Ný starfslýsing, dagsett og undirrituð af yfirmanni
- Útfylltur spurningarlisti sem hægt er að fylla út hér að neðan.
Mikilvægt er að tölvupóstföng í umsókninni séu rétt og virk.
3. Hver er ferillinn?
- Starfsmatsráðgjafar upplýsa viðkomandi stéttarfélag um að beiðni hafi borist.
- Starfsmatsráðgjafar taka ákvörðun um fjölda starfsmanna sem mæta í viðtöl út frá úrtaksreglum og fela tengiliðum í sveitarfélögum að boða starfsmenn á kynningarfund og í viðtöl.
- Þegar tillaga starfsmatsráðgjafa liggur fyrir er hún lögð fyrir starfsmatsnefnd / framkvæmdanefnd starfsmats til úrvinnslu og samþykktar.
- Niðurstaða nefndar er send til stéttarfélags og mannauðsstjóra sviðs / sveitarfélags sem ber að upplýsa starfsmann / starfsmenn og viðkomandi aðila um niðurstöðurnar.
4. Hver eru áhrifin?
Mat á starfi skal gilda frá þeim tíma sem starfið var stofnað. Hafi starf hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga verið tímabundið launasett hærra með bráðabirgðaröðun en niðurstaða starfsmats ber að lækka röðun starfsins til samræmis við niðurstöðuna. Sú lækkun tekur gildi þremur mánuðum eftir að niðurstaða berst sveitarfélagi.
Mikilvægt er að gefa sér góðan tíma til að svara spurningalistanum
Við mælum með að nota tölvu til að svara en formið virkar þó í öllum tækjum. Þú getur valið að vista og halda áfram síðar. Ef þú lendir í einhverjum vandræðum ekki hika við að senda okkur erindi hér á vefnum. Betra er að nota “til baka” og “næsta síða” hnappana undir forminu heldur en “back” og “forward” á vafra.
Smelltu á hnappinn til að opna formið.

