fjármál Archives | Jafnlaunastofa

Kynbundið launamisrétti: Að spara til tjóns í jafnréttis- og velferðarmálum
24. október 2022

Steinunn Rögnvaldsdóttir, Finnborg Salome Steinþórsdóttir, Auður Inga Rúnarsdóttir, Steinunn Bragadóttir, Sigríður Finnbogadóttir og Freyja Barkardóttir, stjórnarkonur í feminískum fjármálum, skrifa:

Ef þið eigið leið um kirkju­garð þann 24. októ­ber og heyrið djúpa skruðn­inga, þá viljum við að þið vitið að það er ekk­ert að ótt­ast. Þetta eru bara kon­urnar sem gengu út á kvenna­frí­dag­inn 1975 og hafa síðan þá yfir­gefið vist­ar­verur þessa heims, að snúa sér í gröf­inni yfir því að hingað séum við kom­in, 47 árum síð­ar, og launa­munur kynj­anna sé enn til stað­ar.

Það er kannski engin ástæða til að óttast, en það er ástæða til að vera reið. Jafn­vel bál­reið. Það er óásætt­an­legt hve hægt gengur að upp­ræta kyn­bundið launa­mis­rétti. Hið sama má segja um aðrar áskor­anir í jafn­rétt­is­mál­um, eins og ójafna umönn­unará­byrgð kynj­anna og heilsu­brest kvenna tengdan sér­stöku álagi í starfi og einka­lífi, sem og kynj­aðri hlut­drægni í heil­brigð­is­kerf­inu þar sem ákveðnir sjúk­dómar kvenna mæta algerum afgangi. Þessi vanda­mál verða ekki slitin úr sam­hengi við hvert annað –  sam­fé­lag sem skammtar sjálfu sér ríf­legan afslátt þegar kemur að launa­setn­ingu kvenna­stétta beitir sama skeyt­ing­ar­leysi þegar að kemur að því að jafna umönn­unará­byrgð kynj­anna og veita full­nægj­andi heil­brigð­is­þjón­ustu til fólks af öllum kynj­um, svo nokkuð sé nefnt. Launa­mis­réttið er bein­tengt, ýtir undir og við­heldur öðru mis­rétti og það er enn ein ástæðan til að upp­ræta það.

Kyn­bundið launa­mis­rétti má rekja að mestu leyti til kyn­bund­innar skipt­ingar í störf og atvinnu­greinar. Í jafn­launa­á­kvæði jafn­rétt­islaga, sem tók í gildi árið 2021, er kveðið á um að kon­um, körlum og fólki með hlut­lausa skrán­ingu kyns skulu greidd laun og njóta sömu kjara fyrir sömu eða jafn verð­mæt störf. Jafn­virð­is­nálgun jafn­launa­á­kvæð­is­ins felur í sér þörf á að leið­rétta virð­is­mat hefð­bund­inna kvenna­starfa. Við bindum miklar vonir við störf aðgerða­hóps um launa­jafn­rétti og jafn­rétti á vinnu­mark­aði og að lagðar verði fram lausnir sem bindi enda á hið vand­ræða­lega tíma­bil grass­er­andi launa­munar kynja í jafn­réttisparadís­inni Ísland­i.

Við í félag­inu Femínísk fjár­mál höfum áhyggjur af fjár­mögnun þeirra aðgerða sem óhjá­kvæmi­legt mun verða að ráð­ast í ef leið­rétta á virð­is­mat kvenna­starfa. Það hefði verið ákjós­an­legt að sjá þess ítar­legri merki að stjórn­völd und­ir­búi þessa leið­rétt­ingu með til­liti til tekju­öfl­un­ar, líkt og við bendum á umsögn okkar um fjár­laga­frum­varp fyrir árið 2023. Fyr­ir­hyggju­leysi getur skapað kerf­is­læga áhættu fyrir rík­is­sjóð. Kostn­að­ur­inn vegna aft­ur­virkrar launa­leið­rétt­ingar ef til dóms­máls kæmi, sem ríkið ætti á hættu að tapa, gæti numið millj­arða króna fyrir rík­is­sjóð sbr. alþjóð­lega þróun og dóma­fram­kvæmd. Á Nýja-­Sjá­landi leiddi dóms­mál árið 2013 til 14-49% launa­leið­rétt­ingu heillar starfs­stéttar og nam kostn­aður u.þ.b. 180 ma. kr. Það er ekki aðeins rétt­læt­is­mál að ráð­ast strax í aðgerðir til að leið­rétta verð­mæta­mat kvenna­starfa, heldur einnig skyn­sam­leg efna­hags­stjórnun að atvinnu­rek­endur hætti að veita sjálfum sér afslátt við launa­setn­ingu kvenna eins og við­geng­ist hefur ára­tugum sam­an.

Auk þess að leið­rétta virð­is­mat þarf að huga að aðbún­aði og álagi sem margar kvenna­stéttir búa við, t.d. á Land­spít­al­an­um. Nýr Land­spít­ali kemur ekki til með að leysa þann vanda sem til staðar er að fullu og bæta verður í fjár­veit­ingar til að leysa þann mann­eklu­vanda og álag sem mynd­ast hefur í heil­brigð­is­kerf­inu á síð­ustu árum. Hér á landi er skortur á heil­brigð­is­starfs­fólki og er mönnun heil­brigð­is­þjón­ust­unnar for­senda þess að hægt sé að veita örugga og skil­virka heil­brigð­is­þjón­ustu.

Það er óskyn­sam­legt og ósjálf­bært að fjár­festa í menntun lækna, hjúkr­un­ar­fræð­inga og sjúkra­liða en hlúa svo illa að stétt­unum að fólkið sem þar starfar treystir sér ekki til að sinna störfum vegna starfs­að­stæðna, lík­am­legs og and­legs álags og streitu. Í októ­ber 1975 gengu konur út, en síð­ustu miss­eri höfum við líka séð konur ganga út úr störfum í heil­brigð­is­kerf­inu – og ekki koma aft­ur.

Óvið­un­andi aðstæður á vinnu­mark­aði, auk umönn­unará­byrgðar og kyn­bund­ins ofbeld­is, eru meðal þeirra áhrifa­þátta sem hugs­an­lega skýra mikla fjölgun örorku­líf­eyr­is­þega á meðal kvenna 50–66 ára. Á sama tíma og stjórn­völd þurfa að bregð­ast við áskor­unum vegna öldr­unar þjóð­ar­inn­ar, m.a. því að útlit er fyrir mik­illi hlut­falls­legri fjölgun fólks á eft­ir­launa­aldri og hlut­falls­lega minni fjölgun meðal fólks á vinnu­mark­aði, er veru­lega óskyn­sam­legt að fjár­festa ekki í aðgerðum sem geta komið í veg fyrir brott­hvarf kvenna af vinnu­mark­aði langt fyrir aldur fram. Við þurfum á öllum að halda. Þrátt fyrir að aðgerðir til að bregð­ast við þessu geti verið kostn­að­ar­samar þá munu þær ekki aðeins leiða til jákvæðra breyt­inga fyrir stórar kvenna­stétt­ir, heldur til lengri tíma einnig til jákvæðra efna­hags­legra áhrifa, s.s. auk­inna tekna rík­is­sjóðs vegna auk­innar atvinnu­þátt­töku og minni útgjalda vegna almannatrygg­inga og heil­brigð­is­þjón­ust­u.

Femínísk fjár­mál hafa bent á að til að ráð­ast í aðgerðir sem hafa mikið gildi fyrir jafn­rétti og sam­fé­lags­lega vel­ferð, verður fjár­mögnun að vera full­nægj­andi. Í fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2023 boðar rík­is­stjórnin í reynd nið­ur­skurð næstu árin með áherslu á að stemmt verði stigu við auknum eða nýjum útgjöldum og aðhalds­kröfum sem þar koma fram. Ekki sjást merki tekju­öfl­unar sem leið­togar tveggja rík­is­stjórn­ar­flokka hafa talað fyr­ir, svo sem hval­reka­skattur, hækkun veiði­gjalda og hækkun skatta á fjár­magnstekj­ur. Það er nokkuð sér­stakt að stefna for­ystu­fólks rík­is­stjórn­ar­innar sé svo fjar­ver­andi í frum­varp­inu og að aðal styrk­ing á tekju­hlið frum­varps­ins sé hækkun skatta á neyslu ein­stak­linga, sem óhjá­kvæmi­lega mun koma verr við tekju­lægri hópa. Stjórn­völd verða að taka verk­efnið alvar­lega, beita for­gangs­röðun og sann­gjarnri tekju­öflun til að spara sig ekki til tjóns í jafn­rétt­is- og vel­ferð­ar­mál­um.

The post Kynbundið launamisrétti: Að spara til tjóns í jafnréttis- og velferðarmálum appeared first on Jafnlaunastofa.