Skip to main content

Laust starf hjá Jafnlaunastofu

Jafnlaunastofa vinnur að þróun virðismatskerfis fyrir störf hjá ríkinu og að þróun virðismatskerfis fyrir störf félaga sem tilheyra Kennarasambandi Íslands í samstarfi við hagaðila.

Í báðum verkefnunum felst þróun virðismatskerfis, ítarleg greining á völdum störfum eða starfahópum og mat þeirra út frá viðmiðum kerfisins.

Jafnlaunastofa óskar því eftir áhugasömum einstaklingi til tímabundins starfs að öllum þáttum verkefnisins. Allt frá þróun greiningartækja, starfagreininga, úrvinnslu gagna, þróunar matskerfis og mats starfa auk miðlunar og fræðslu um jafnlaunamál, virðismat starfa og fleira því tengdu.

Jafnlaunastofa sf. er sameignarfélag í eigu Reykjavíkurbogar og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem hefur það hlutverk að vinna að launajafnrétti á vettvangi sveitarfélaga hér á landi með notkun starfsmatskerfa.

Kröfur um menntun, reynslu og færni

  • Háskólamenntun á sviði félagsvísinda, sálfræði og menntavísinda. t.a.m. kynjafræði, lögfræði, hagfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Færni í greiningu gagna og upplýsinga og forgagnsröðun þeirra.
  • Góð samskiptafærni og reynsla af vinnu í hópum þar sem tekið er mið af fjölbreyttum sjónarmiðum við lausn mála.
  • Færni og áhugi á því að vinna að verkefnum sem tengjast jafnlauna- og/eða jafnréttismálum.
  • Reynsla af störfum þar sem krafist er frumkvæðis og sjálfstæðis í vinnubrögðum.
  • Nákvæm og öguð vinnubrögð.
  • Rík samstarfsfærni einkum til að vinna í hóp.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.
  • Færni í að koma frá sér upplýsingum með hnitmiðuðum hætti.
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýjungar.

Helga Björg O. Ragnarsdóttir veitir upplýsingar og tekur við umsóknum í tölvupósti helga@jafnlaunastofa.is

Jafnlaunastofa sf. er sameignarfélag í eigu Reykjavíkurbogar og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem hefur það hlutverk að vinna að launajafnrétti á vettvangi sveitarfélaga hér á landi með notkun starfsmatskerfa.