Skip to main content
Jafnlaunastofa

Starfsmat

Starfsmat stuðlar að málefnalegri, hlutlægri og samræmdri launasetningu starfa og dregur úr launamisrétti

Notkun starfsmats gerir launaákvarðanir skýrar, sýnilegar og aðgengilegar starfsfólki

Markmið starfsmats kerfa er að tryggja, eins og kostur er, að starfsfólki séu ákvörðuð laun með málefnalegum og hlutlægum hætti. Á það að leiða til grunnlaunasetningar þar sem jafn verðmæt störf fá sömu röðun, óháð kyni, uppruna, starfsstöðum, stéttarfélagi, eða öðrum breytum. Frá síðustu aldamótum hafa Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg byggt launasetningu sífellt stærri hluta starfa sinna á starfsmatskerfinu SAMSTARF. Kerfið er greiningartæki sem notað er til að meta með kerfisbundnum og samræmdum hætti þær kröfur sem störf gera til starfsfólks. Kerfið byggir á hlutlægum viðmiðum sem notuð eru til að bera saman störf í samræmi við þær kröfur sem í störfunum felast, óháð hæfni þeirra sem þau vinna.

Notkun starfsmats gerir launaákvarðanir skýrar, sýnilegar og aðgengilegar starfsfólki og eru því mikilvægur liður í að uppfylla jafnlaunaákvæði laga um að starfsfólki séu greidd sömu laun fyrir sambærileg og jafnverðmæt störf.

Starfsfólk Verkefnastofu starfsmats vinnur tillögur að mati á störfum eftir starfsmatskerfinu. Þær tillögur eru lagðar fyrir viðeigandi nefndir Reykjavíkurborgar og Sambands íslenskra sveitarfélaga til afgreiðslu.

Í nefndunum sitja auk atvinnurekenda, fulltrúar viðeigandi stéttarfélaga. Allar samþykktir á mati á virði starfa þurfa að vera einróma. Frekari upplýsingar um starfsmatskerfið má finna á heimasíðu heimasíðu Verkefnastofu starfsmats.

Verkefnastofa starfsmats

Starfsmat er: 

  • aðferð til að leggja samræmt mat á ólík störf
  • aðferð til að gera forsendur launaákvarðana sýnilegri
  • aðferð til þess að gera rökin á bak við launaákvarðanir skýrari
  • leið til að ákvarða sömu laun fyrir sambærileg eða jafnverðmæt störf

Starfsmatskerfið er greiningartæki sem er notað til að meta með kerfisbundnum hætti þær kröfur sem störf gera til starfsmanna. Kerfið byggir á hlutlægum viðmiðum sem notuð eru til að bera saman störf í samræmi við þær kröfur sem í störfunum felast, óháð hæfni þeirra sem þau vinna.

Markmið starfsmats er að tryggja að starfsmönnum séu ákvörðuð laun með eins málefnalegum og hlutlægum aðferðum og hægt er og á að leiða til þess að störfum sé raðað þannig til grunnlauna að þau séu hin sömu fyrir störf sem metin eru jafnkrefjandi, óháð starfsstöðum, stéttarfélagi eða kyni.

Starfsmat er ekki:

  • mat á persónulegri hæfni starfsmanna í starfi
  • mat á árangri starfsmanna í starfi
  • mat á frammistöðu starfsmanna í starfi

Mikilvægt er að hafa í huga að starfsmat metur aðeins grunnkröfur til starfa en ekki einstaklingsbundna hæfni starfsmanna.  Með öðrum orðum þá er lagt mat á það hvaða kröfur eru gerðar til starfsmanns í tilteknu starfi.  Ekki er lagt mat á einstaklingsbundna hæfni jafnvel þó umfram hæfni eða hæfileikar hafi bein eða óbein áhrif á frammistöðu í starfi.