Byggingafræðingur við stærri verkefni
Reykjavíkurborg - Umhverfis- og skipulagssvið
2149.99
606
270
7.
142
Starfið krefst mikillar fræðilegrar þekkingar sem byggir á kenningalegum grunni. Einnig er krafist hagnýtrar þekkingar á sérfræðisviði sem aðeins er hægt að fá með mikilli starfs- og stjórnunarreynslu. Starfsmaður þarf að hafa nákvæma þekkingu á stefnum, vinnureglum og verklagi á sérfræðisviðinu auk þekkingar á skipulagi, stjórnsýsluháttum, verklagi og stefnu þeirra stofnana sem falla undir sérfræðisvið starfsmannsins. (Hér getur verið um að ræða sérfræðistarf þar sem mikil fyrri þekking og reynsla á sérfræðisviðinu er forsenda ráðningar í starfið eða millistjórnendur sem bera stjórnunarlega ábyrgð á margs konar sérfræðistarfsemi). Krafist er:
- Háskólaprófs á framhaldsstigi (MA/MS) eða;
- Háskólaprófs á fyrsta stigi (BA/BS) auk mikillar starfs- og stjórnunarreynslu á viðkomandi sérfræðisviði
2. Hugræn færni
6.
78
Starfið krefst færni í að greina, skapa og þróa lausnir og túlka mjög fjölbreyttar og sérlega flóknar sérfræðilegar upplýsingar eða aðstæður. Starfsmaður þarf einnig að vera fær um að vinna að eða móta áætlanir til framtíðar (meira en ár). Starfsmaður þarf að geta notað þekkingu sína og reynslu til þess að leggja mat sitt á og greina aðstæður eða vandamál í starfi og finna, þróa og ákvarða nýjar leiðir, viðmið eða aðferðafræði til þess að leysa úr viðfangsefnum eða vandamálum.
3. Samskiptafærni
5.
65
Starfið felur í sér eitthvert/einhver eftirfarandi atriða:
- Mjög flókna umönnun eða þjálfun þar sem koma þarf til móts við mjög krefjandi þarfir viðtakenda.
- Handleiðslu, formlega ráðgjöf, samninga- eða fortölufærni, eða málafærslu til þess að sannfæra aðra um réttmæti þess að grípa til tiltekinna aðgerða, sem þeim væri að öðrum kosti á móti skapi.
- Miðlun flókinna eða umdeildra upplýsinga, munnlega eða skriflega til ýmissa hópa, þar á meðal til einstaklinga sem hafa ekki sérfræðikunnáttu á því sviði sem upplýsingarnar ná til.
- Að nota eitt eða fleiri tungumál, önnur en íslensku, þar sem þörf er á að miðla flóknum upplýsingum til hópa eða einstaklinga, eða til að greina og koma til móts við krefjandi þarfir notenda, á því tungumáli.
Flókin eða erfið samskipti af þessu tagi eru einn af meginþáttum starfsins og til að ná þeirri færni sem hér er krafist þarf starfsmaður að hafa að baki nám sem tengist þessu sviði samskipta.
4. Líkamleg færni
3.
39
Starfið krefst handlagni, fingrafimi, samhæfingar eða næmni, t.d. vegna krafna um nákvæmni og hraða við innslátt á lyklaborð, aksturs sendiferða- eða fólksflutningabifreiðar, stjórnunar tækja eða notkunar verkfæra þar sem annað hvort er;
- krafist nokkurrar nákvæmni og hraða, eða;
- umtalsverðrar nákvæmni.
5. Frumkvæði
5.
65
Starfið felur í sér að vinna ákveðin verkefni í samræmi við viðurkenndar tillögur/innan viðurkennds ramma. Starfsmaður þarf oft (reglulega) að taka sjálfstæðar ákvarðanir og sýna frumkvæði án undanfarandi aðkomu yfirmanns. Starfsmaðurinn hefur samráð við yfirmann vegna stærri mála sem varða t.d. stefnu mála eða stuðning við mál, eða fjárhagslegar ákvarðanir.
6. Líkamlegt álag
1.
10
Verkefni eða starf er unnið að meginhluta í sitjandi stöðu og auðvelt er að standa upp reglulega og hreyfa sig. Einhverjar kröfur kunna að vera gerðar um að standa, ganga, beygja sig eða teygja; stöku sinnum kann að vera þörf fyrir að lyfta eða bera létta hluti.
7. Hugrænar kröfur
5.
50
Starfið krefst almennrar aðgæslu og einbeitingar auk:
- mikillar einbeitingar meirihluta vinnudagsins;
- mikillar einbeitingar vegna fjölbreyttra verkefna meirihluta vinnudagsins;
- mjög mikils vinnutengds álags vegna tíðra tímamarka, truflana eða mismunandi krafna sem starfsmaður þarf að mæta samtímis;
8. Tilfinningalegt álag
2.
20
Starfið er þess eðlis að starfsmaður er í samskiptum við aðila sem vegna aðstæðna sinna eða hegðunar geta öðru hvoru valdið starfsmanni einhverju tilfinningalegu álagi.
9. Ábyrgð á fólki
3.
39
Í starfinu felast talsverð bein áhrif á velferð einstaklinga eða hópa, þegar:
- Starfsmaður þarf að greina þarfir einstaklinga eða hópa sem eru háðir starfsmanni vegna grunnþarfa og veita þeim viðeigandi umönnun eða þjónustu.
- Starfsmaður þarf í starfi sínu að framfylgja og/eða innleiða lög eða reglugerðir sem hafa bein áhrif á heilsu, öryggi eða velferð fólks.
10. Ábyrgð á stjórnun
1.
13
Starfið felur í sér takmarkaða eða enga beina ábyrgð á verkstjórn, leiðsögn eða samræmingu á vinnu annarra. Starfið kann að fela í sér sýnikennslu á eigin störfum eða leiðsögn og handleiðslu fyrir nýja starfsmenn eða aðra.
11. Ábyrgð á fjármunum
1.
13
Starfið felur í sér takmarkaða eða enga beina ábyrgð á fjármunum. Stöku sinnum kann starfið að fela í sér meðhöndlun lítilla fjárhæða, kortagreiðslur, reikninga eða sambærilegt.
12. Ábyrgð á búnaði
4.
52
Starfið felur í sér mikla beina ábyrgð á búnaði, tækjum og mannvirkjum. Starfið felur í sér ýmist:
- Aðlögun, þróun eða hönnun þýðingarmikilla upplýsingakerfa eða:
- Aðlögun, þróun eða hönnun fjölbreytts búnaðar, lands, bygginga eða sambærilegt eða:
- Öryggisgæsla á fjölbreyttum verðmætum búnaði, tækjum eða mannvirkjum eða:
- Pantanir á fjölbreyttum búnaði og birgðum eða:
- Þýðingarmikið framlag til aðlögunar, hönnunar eða þróunar á annað hvort umfangsmiklum upplýsingakerfum til notkunar hjá öðrum aðilum, eða fjölbreyttum búnaði, landi, byggingum eða sambærilegt.
13. Vinnuumhverfi
2.
20
Starfið krefst þess að starfsmaður;
- vinni stundum í umhverfi þar sem aðstæður teljast óviðunandi, óþægilegar eða hættulegar samkvæmt fyrrnefndri skilgreiningu, eða;
- mæti stundum hegðun þjónustuþega eða almennings sem telst óviðunandi, óþægileg eða hættuleg.