Fræðsla um virðismatskerfi og mat starfa

Staður: Hallveigarstöðum, Túngötu 14, Reykjavík
Stund: 30. nóvember kl. 9-12

KortSetja í dagatalSetja í dagatal

Markmið og fyrirhugað efni fræðsludaga um virðismat starfa

Meginmarkmið fræðslunnar er að auka þekkingu og skilning á virðismati starfa og hvernig það getur stutt við gagnsæjar, samræmdar og faglegar launaákvarðanir. Fyrirlesarar eru breskir sérfræðingar, David Leask og Mick Brody, sem unnið hafa að fjölmörgum þróunar- og innleiðingarverkefnum á sviði virðismats. Í fræðslunni fjalla þeir um ávinning og áskoranir sem fylgja þróun, innleiðingu og viðhaldi virðismatskerfa út frá sjónarhóli starfsfólks, stéttarfélaga og launagreiðenda. Hér að neðan má sjá lýsingu á inntaki fræðslunnar og hvaða spurningum henni er ætlað að svara.

1. Inngangur að virðismati starfa

  • Kynning á virðismati starfa, tilgangi þess, grundvallarsjónarmiðum og sögulegri þróun.
  • Reynsla af notkun virðismatskerfa í Bretlandi og helsti lærdómur.
  • Ávinningur virðismats starfa fyrir launagreiðendur, starfsfólk og stéttarfélög.

2. Virðismatskerfi – þróun og innleiðing

  • Þróun, hönnun og innleiðing virðismatskerfa.
  • Áskoranir og tækifæri sem felast í því að nota eitt virðismatskerfi til að meta fjölbreytt störf og starfahópa.
  • Við hvaða aðstæður getur verið viðeigandi að nota fleiri en eitt virðismatskerfi hjá sama launagreiðanda eða innan sömu skipulagsheildar.
  • Hvaða grundvallarviðmið og kröfur virðismatskerfi þurfa að uppfylla til að styðja við markmið um launajafnrétti og lágmarka hættu á kynbundinni skekkju.

3. Virðismat starfa sem grundvöllur launasetningar

  • Yfirlit yfir virðismatsferlið í heild sinni út frá sjónarhóli launagreiðenda, starfsfólks og stéttarfélaga.
  • Hagnýtar áskoranir við mat ólíkra starfa, meðal annars þegar um er að ræða sérhæfð störf sem aðeins einn starfsmaður gegnir annars vegar og fjölmenn störf hins vegar.
  • Tengsl niðurstaðna virðismats við launakerfi, launauppbyggingu og launaákvarðanir.
  • Hvernig virðismat starfa getur skapað faglegan grundvöll fyrir launasetningu, með hliðsjón af mikilvægi þess að greina á milli mats á innbyrðis verðmæti starfa og ákvarðana um raunveruleg laun.

4. Viðhald, gæðastýring og samræmi í framkvæmd

  • Hlutverk og ábyrgð hagaðila við þróun, innleiðingu, rekstur og viðhald virðismatskerfa.
  • Góðir starfshættir við viðhald og uppfærslu virðismatskerfa til að tryggja að þau haldist viðeigandi, áreiðanleg og þjóni áfram tilgangi sínum.
  • Ferlar til að tryggja að störf séu metin með réttum og samræmdum hætti til lengri tíma.
  • Aðferðir við gæðastýringu og gæðaprófanir og hvernig þær nýtast til að greina og leiðrétta ósamræmi í niðurstöðum virðismats.
  • Ábyrgð og hlutverk ólíkra aðila við að tryggja gæði, samræmi, trúverðugleika og áreiðanleika virðismatskerfa.

5. Stjórnskipulag og ákvarðanataka

  • Stjórnskipulag virðismatskerfa í Bretlandi, meðal annars varðandi þróun, innleiðingu og viðhald kerfa.
  • Ákvarðanatökuferlar og hlutverk launagreiðenda, starfsfólks, stéttarfélaga og annarra hagaðila.
  • Fyrirkomulag við mat starfa, endurskoðun matsniðurstaðna og meðferð áfrýjunarmála.
  • Hagnýt reynsla af stjórnskipulagi sem stuðlar að gagnsæi, skýrri ábyrgð, samræmi og trausti á virðismatsferlinu.

Skráningargjald er 5.000 kr.

Nánari upplýsingar

Krafa verður send í heimabanka eftir viðburð, þú einfaldlega skráir þig hér að neðan og við sendum þér kröfuna eftir viðburðinn. Skráningargjald er 5.000 kr.

Heldur betur! Eftir langa bið þá er húsið loksins orðið aðgengilegt fólki sem á erfitt með að ganga í stiga eða fyrir þau sem nota hjólastóla. Lyfta er í anddyri hússins. Aðgengileg salerni eru í kjallara hússins, andspænis fundarsalnum sjálfum. Hljóðvist í salnum á Hallveigarstöðum er ágæt.

Í salnum á Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík. Gengið er inn í anddyri hússins og stigi til vinstri leiðir niður í kjallara. Eins er hægt að taka lyftuna.

Við bendum á bílastæði við Landakotskirkju, bílastæðahúsið í Mjóstræti eða bílastæðahúsið undir Ráðhúsi Reykjavíkur.