Skip to main content
Jafnlaunastofa

Fræðsla

Jafnlaunastofa veitir fræðslu á sviði starfsmats og jafnlaunamála

Jafnlaunastofa veitir fræðslu um starfsmat og jafnlaunamál sem ætlað er að styðja sveitarfélög við að uppfylla jafnlaunaákvæði jafnréttislaga.

Boðið er upp á fjölbreytta fræðslu fyrir sveitarfélög og stéttarfélög um starfsmatskerfið og notkun þess. Allt frá stuttum kynningarfundum um markmið og megin áherslur starfsmats upp í ítarlegri námskeið um notkun starfsmats við mat á virði starfa og launasetningu.

Dæmi um námskeið:

  • Almenn fræðsla um starfsmatskerfið, markmið þess, uppbyggingu og notkun.
  • Námskeið fyrir starfsfólk sveitarfélaga um forsendur starfsmats, notkun starfsmatskerfisins og verklagið við mat starfa.
  • Fræðsla um samspil starfsmats við þær kröfur sem Jafnlaunastaðall gerir til launasetningar.

Jafnlaunastofa veitir fræðslu á sviði starfsmats og jafnlaunamála til annarra atvinnurekenda en sveitarfélaga samkvæmt gjaldskrá.

Fræðsludagur: Þróun virðismatskerfa í þágu launajafnréttis

Kennsluefni af námskeiðinu má hlaða niður hér.

Virðismat starfa - Helga BjörgReynsla Nýja-Sjálands - Amy Ross (á íslensku)Reynsla Nýja-Sjálands - Amy Ross (á ensku)

Haldið var námskeið sem ætlað var fulltrúum faglegra stjórna virðismats- og starfsmatsverkefna, starfsfólki ráðuneyta, fulltrúum samtaka launafólks og annarra hagaðila sem að virðismatsverkefnum koma.

Dagsetningar námskeiðanna: 5. maí, 6. maí, 7. maí, 12. maí, 13. maí, 14. maí og 15. maí (á Akureyri).

Skráning fór fram hjá Starfsmennt, og má sjá frekari upplýsingar um skráningu og dagskrá má sjá hér fyrir neðan.

Skráning

Dagsetningar

Mánudaginn 5. maí – kl. 08:30–16:00
Þriðjudaginn 6. maí – kl. 08:30–16:00
Miðvikudaginn 7. maí – kl. 08:30–16:00
Mánudaginn 12. Maí – kl. 08:30–16:00
Þriðjudaginn 13. maí – kl. 08:30–16:00
Miðvikudaginn 14. maí – kl. 08:30–16:00

Leiðbeinendur

Amy Ross, sérfræðingur í jafnlaunamálum og þróun virðismatskerfa.
Starfsfólk Jafnlaunastofu.